top of page

Unnar S. Þorsteinsson

Viðskiptafræðingur

  • LinkedIn

Hagnýt ráðgjöf byggð á rekstrarreynslu

Um mig

Ég aðstoða fyrirtæki við að taka betri ákvarðanir um rekstur, vöxt og endurskipulagningu. Reynsla mín spannar fjármál, tækni og ferðaþjónustu, meðal annars sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði Arion banka og sem rekstrarstjóri ferðaþjónustufyrirtækis, þar sem ég leiddi endurskipulagningu með langtímavöxt og sjálfbærni að leiðarljósi.

​

Ég er með MBA frá University of Edinburgh Business School og BBA í hagfræði frá Texas State University. Ég legg bæði fræðilega þekkingu og hagnýta reynslu í að skapa raunveruleg og varanleg verðmæti fyrir viðskiptavini mína.

Ég er fæddur og uppalinn í Garðabæ, þar sem ég lék körfubolta og stundaði kraftlyftingar með Stjörnunni. Á unglingsárum flutti ég til Austin í Texas og bjó þar í átta ár, lauk háskólanámi og hóf starfsferilinn hjá Tesla. Borgin og öll þau tækifæri sem hún bauð uppá áttu vel við mig, þótt hitinn hafi verið full mikill fyrir íslenskan rauðhaus.

​

Eftir árin vestanhafs flutti ég heim og starfaði sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði Arion banka, áður en ég hélt til Edinborgar í MBA-nám. Þaðan lá leiðin aftur heim í ferðaþjónustuna og nú hingað, þar sem ég nýti fjölbreytta reynslu mína í markvissa og sérsniðna ráðgjöf.

IMG_3227.JPG

Þjónusta

Kaup og sala

Það er sjaldan verðið eitt sem lætur viðskipti stranda. Oftar er það eitthvað sem kemur í ljós of seint í ferlinu.

​

Ég fylgi eigendum í gegnum allt ferlið, frá fyrstu greiningu og verðmati yfir í áreiðanleikakannanir og samningaviðræður. Tengslanet mitt nýtist til að tengja saman kaupendur og seljendur áður en málin rata á opinn markað.

Fjármögnun

Fjármagnsskipan sem hentaði fyrirtækinu fyrir fimm árum getur verið það sem heldur aftur af því í dag.

​

Ég greini stöðuna út frá rekstrinum sjálfum, sjóðstreymi, veðrými og áformum eigenda, og met hvaða leiðir standa raunverulega til boða. Ég hef setið hinum megin við borðið hjá banka og veit hvernig lánamál eru metin þar. Þá þekkingu nýti ég til að undirbúa mál sem standast skoðun og koma þeim í hendur réttra fjárfesta eða lánastofnana.

Rekstur og skipulag

Þegar rekstur þarf að breytast er sjaldan óljóst hvað er að. Það er erfiðara að ákveða í hvaða röð á að taka á því.

​

Ég vinn með eigendum og stjórnendum að endurskipulagningu á rekstri, skipulagi og fjármögnun. Ég hef sjálfur borið ábyrgð á slíku verkefni sem rekstrarstjóri, þar með talið á ákvörðunum sem enginn vill taka. Áherslan er á breytingar sem halda þegar ráðgjafinn er farinn.

Hafðu Samband

Phone

856-6537

Email

Website

Address

Urriðaholtsstræti 40

210 Garðabær

Fyrirspurn

© 2025  Thorsteinssynir ehf

bottom of page